Uppeldis- og menntunarfræðin
Dagsetning
10. febrúar 2012
Könnun
Hvernig fílaru þig í skólanum?





26.12.2008 11:35:57 / Jóhanna

ný heimasíða

Gleðileg jól kæru félagsmenn og aðrir velunnarar PADEIA :)

Jólagjöfin sem Padeia færir ykkur þetta árið er glæný heimasíða sem er þó enþá í vinnslu.

Endilega kíkið á þetta og skoðið. Þeir sem hafa einhverjar athugasemdir mega endilega senda mér póst jsr1@hi.is eða ef það er eitthvað sem ég á að bæta við.

Jólakveðja frá Padeia

Hanna formaður og vefstjóri

www.nemendafelog.hi.is/padeia



» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2008 23:10:48 / Jóhanna

Partý á laugardaginn!

Jæja þá er það ákveðið að partý verður haldið heima hjá Hrafnhildi (plús-einn) laugardagskvöldið 20.desember kl 21:00 - ?? og verður áfengi í boði Padeia. Samt ekki nóg til að verða hellaður svo ekki treysta á það hehe
Hrafnhildur okkar á heima á Bergstaðarstræti 33 og síminn hjá henni er 868-5336.

Þeim sem ætla á NASA er bent á að forsala miða er milli 13 og 17 á laugardaginn á NASA og kostar 2000 kr. Annars er engin skylda að fara þangað eftir partýið, eða fara eitthvert yfir höfuð ;) hehehe

Ég mæli eindregið með því að þið gefið ykkur 2 mín í að skrifa smá sms til Hrafnhildar (muna að setja nafn undir) og látið hana vita ef þið ætlið að koma svo hún hafi það svona nokkurnveginn á hreinu hversu margir koma.

Þá bara segi ég góða skemmtun elskurnar and drink (twenty) one for me! (Treysti þá sérstaklega á Rósulind og Arnar í þeim efnum!)

Jólakveðja
Hanna og Stjórnin




» 10 hafa sagt sína skoðun

15.12.2008 12:55:36 / Jóhanna Elísabet

Próflokadjamm!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

hæhæ

það kom nú ekkert útúr síðasta bloggi með partýpleis... :s
Ef einhver getur haft partý heima hjá sér á laugardaginn þá væri fínt að fá að vita það bara í dag eða á morgun :d Hringja í mig (Jóhönnu E.) í síma 822-7169, ekki emeil eða í kommentin hér því ég veit ekki hve mikið ég verð á netinu...
Ef enginn býður fram húsnæði þá verður því miður ekkert partý :( og því ekkert frítt áfengi 8|

Eins væri ágætt að þið sem hefðuð áhuga á að fara í partý með uppeldisfólki, að setja það í kommentadótaríið :) svo við fáum sirka fjöldan :)

Vona að ég heyri frá einhverjum:!:

kv. Jóhanna E.

Forsala miða á ballið er á föstudaginn milli 13 og 17!! á NASA! Kostar 2000 kall!


» 15 hafa sagt sína skoðun

14.12.2008 17:29:28 / Jóhanna

Próflokadjamm!!!!

Jæja ég held að flestir séu búnir í prófum núna og vonandi að það hafi gengið vel.

en svona að skemmtilegra efni.... próflokadjamminu:d

stefnt er að hafa próflokadjammið okkar laugardaginn 20.des - þá er ball með Palla á Nasa.
próflokadjammið felst í fyrirpartýi áður en farið er í bæinn þar sem Padeia blæðir einhverju áfengi í liðið. próflokadjammið hefur hingað til alltaf heppnast mjög vel og fólk verið skemmtilega drukkið og svona;)

gaman væri að heyra hverjir hafa hugsað sér að vera með í fyrirpartý svo hægt sé að áætla áfengið. eins væri gott að vita ef einhver hefur tök á að bjóða fram húsnæði fyrir partýið.

vonandi að fólk taki vel í þetta og það verði góð þátttaka og próflokunum verði vel fagnað:d

Jólakveðja Bara Jóhanna




» 6 hafa sagt sína skoðun

30.11.2008 10:25:39 / Jóhanna

Gangi ykkur vel!

hæhæ ég vil bara óska öllum góðs gengis í próflestri og prófunum sjálfum! þið eigið eftir að rokka þetta;)

og svo vil ég bara segja ykkur frá því að það verður massa skemmtilegt próflokadjamm 20.des þar sem padeia blæðir einhverju áfengi í liðið og svo er ball með Páli Óskari, líklegast á Nasa. :d
en allar frekari upplýsingar eftir próf....

kveðja
Bara Jóhanna Oddabúi!


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 17:40:33 / Jóhanna

Frá Stúdentaráði

Kæru stúdentar Háskóla Íslands

1.desember er hátíðisdagur stúdenta og af því tilefni verður Stúdentaráð með ærleg hátíðarhöld úti í bæ og á Háskólatorgi. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mætir, ljúffengar veitingar verða í boði og stórsveitin FM Belfast leikur fyrir dansi og stuði á Háskólatorgi. Stúdentar HÍ! Sameinumst og skemmtum okkur öll saman á deginum okkar.

 Dagskráin lítur svona út 1. desember: 10:00

-Hátíðarsamkoma í hátíðarsal Aðalbyggingar. Kristín Ingólfsdóttir, rektor, ávarpar stúdenta. Heitt kakó og kruðerí í boði.

-Halla Mia Ólafsdóttir, meðlimur Stúdentaleikhússins og stúdent flytur ljóð.

-Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra er heiðursgestur.

11:00

-Stúdentar við Háskóla Íslands sameinast öðrum stúdentum og námsmönnum landsins á Austurvelli.

-DJ á svæðinu og menntaviti afhjúpaður. Menntavitinn hefur það hlutverk að lýsa okkur leið út úr kröggunum og minna ríkjandi stjórnvöld á mikilvægi menntunar á tímum sem þessum. Nánari upplýsingar á www.student.is/menntavitinn.

12:00

-Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands er heiðursgestur á Háskólatorgi og ávarpar stúdenta.

-Háskólakórinn flytur lög.

-FM Belfast leikur fyrir dansi.

-Hádegisverður í boði.


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.11.2008 16:12:47 / Jóhanna Elísabet

Týndi einhver lyklakippu í gær?

Sæl og blessuð öll og takk fyrir gærkvöldið...þetta var æðislega gaman:haha::haha:Núna tekur bara próflestur við hjá okkur sem er ekki eins gaman:|
Í gær á 22 fann ég lyklakippu og ég kannaðist svo rosalega við hana, veit að ég hef séð hana áður. Það gæti því vel verið að einhver af ykkur eigi hana og sakni hennar.


Hérna er kippan





Getið haft samband við mig í síma 662-0363 eða netleiðis ef þið viljið það frekar.
Vona að einhver af ykkur eigi þessa kippu

Kveðja

Guðrún Kjartans




» 1 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 13:44:25 / Jóhanna

Vísó í NOVA

Þá er komið að skráningu í Vísó í NOVA nk föstudag kl 18-20. Skráningu lýkur miðnætti á miðvikudag!

Spennandi vísindaferð þar sem við höfum ekki áður farið í NOVA. Hún byrjar stundvíslega kl 18 - mæting 17:45 og ekki mínútu seinna. Nova er til húsa í Lágmúla 9  -  svona ef það hefur farið framhjá einhverjum. Eftir vísó verður farið að snæða þar sem þið kjósið (nema veitingarnar í NOVA séu ekki eingöngu í fljótandi formi) og svo taka við tilboðin á Celtic!

Þar sem 30 sæti eru í boði má hafa með sér vin og þið kunnið skráninguna. Nafn, padeia/ekki padeia og plús vinur..

Ef þið skráið ykkur en getið svo ekki mætt er NAUÐSYNLEGT að hafa samband við mig (848-5552) eða Bara-Jóhönnu (847-4174) til að láta vita svo við getum hleypt einhverjum öðrum að.

Ég vil líka ítreka það að þetta er síðasta djamm fyrir prófin - stefnum að frábærri mætingu og geggjaðri stemmingu! p.s. ÉG mun líka mæta á svæðið með sjóarann!! Getið nú ekki farið að missa af því ;)

Kv. Hanna formaður og stjórnin


» 31 hafa sagt sína skoðun

11.11.2008 18:25:04 / Jóhanna

Takk fyrir síðast

:d
Ég vil bara þakka ykkur öllum fyrir alveg frábæra vísindaferð á föstudaginn, ég skemmti mér mjög vel:d

Eins vil ég minna ykkur á næstu vísindaferð sem er föstudaginn eftir viku eða 21.nóv. Þá verður farið í Nova  og hvet ég alla til að koma og taka gott djamm áður en prófatörnin byrjar! En þetta verður betur auglýst síðar.

Kveðja Bara Jóhanna

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.11.2008 10:31:04 / Jóhanna

Laus sæti í vísó

Það eru 4 laus sæti í vísó í kvöld ef einhver vill bæta við vin ... endilega að reyna að fá fleiri með og fylla ferðina.

Ef þið finnið vin til að taka með þá endilega látið mig vita í síma 847-4174 svo ég geti skráð hann með.

Eins vil ég minna ykkur á að mæta tímanlega svo húsinu verður ekki læst á ykkur.
Ölgerðin er á Grjóthálsi 7-11 og er inngangurinn inn í húsið að baka til. það er keyrt á milli húsanna tveggja aftur fyrir og þar er inngangurinn, ef þið eigið í vandræðum með að finna þetta þá hringið þið bara í mig.

Hlakka til að sjá ykkur öll í kvöld

Kveðja Bara Jóhanna

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2008 12:13:06 / Jóhanna

Ritnefndarfundur í kvöld

Þá er búið að loka fyrir skráningu í Vísó (fyrir löngu hehe) og orðið fullt. Hrikalega ánægð með þessa mætingu og vonandi skemmtið þið ykkur alveg hrikalega vel!

Ég vil hinsvegar benda ykkur á að í kvöld er ritnefndarfundur kl 20:00 (Sharp) heima hjá Jóhönnu Elísabetu, Eggertsgötu 16 íbúð 103!

Hvetjum sem flesta til að mæta en þetta er fyrsti ritnefndarfundur vetrarins.

Það hefur ENGINN af fyrsta ári haft samband við mig útaf þessu, svo ég
treysti á það að fá 2 fulltrúa 1.árs á fundinn í kvöld elskurnar mínar :)
Svo má nú ekki gleyma því að það að hafa verið í ritnefnd skólablaðs
lookar rosalega vel á "CV-inu" í framtíðinni ;)

Allir þeir sem hafa áhuga á að vinna við blaðið, hversu mikið/lítið þeir
geta gert eru hvattir til að mæta

Sjáumst í kvöld!

Ritnefnd




» 4 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 11:41:23 / Jóhanna Elísabet

Vísó í Ölgerðina!!

Næsta vísindaferð verður á föstudaginn næsta, 7. nóvember, í Ölgerðina.:haha:
40 manns komast í þessa ferð þannig að við ætlum að leyfa ykkur að skrá einn vin með ykkur. Eins og ávallt þá ganga Padeia meðlimir fyrir og nemendur uppeldisfræðinnar ganga fyrir vinum. 500 kall er fyrir vini og þá sem ekki eru skráðir í félagið.

Mæting er 16:50 uppí Ölgerð og bið ég ykkur að mæta þá svo við getum tekið við greiðslu og sjá hverjir eru mættir :d

Vísindaferðin er til kl. 19 og þá kemur rúta og sækir okkur og við taka tilboðin á Celtic ;)

Skráið ykkur í athugasemdir með nafni og síma og svo plús 1 ef þið viljið hafa vin með. Takið einnig fram hvort þið séuð í Padeia :)

Skráningu líkur á miðnætti á miðvikudaginn!!!!!!!!!

Svo ef þið eruð búin að skrá ykkur og komist svo ekki þá láta okkur í stjórninni vita takk fyrir:!:

Hlökkum til að sjá ykkur dúllurnar okkar
Kveðja, Stjórnin:d



» 47 hafa sagt sína skoðun

31.10.2008 18:13:42 / Jóhanna

Ritnefndarfundur

Það er ekki seinna vænna en fara að huga að vinnslu okkar ástkæra PADEIA
blaðs sem áætlað er að komi út í mars/apríl 2009.

Okkur vantar kraftmikið fólk í auglýsingasöfnun (aðallega gert í gegnum
e-mail) sem og sniðuga og hugmyndaríka penna.

Við stefnum á að hafa blaðið sérstaklega glæsilegt og efnismikið - eins ef
að áhugaljósmyndari er meðal oss þá væri sá hinn sami meira en velkominn í
hópinn!

Áætlað er að halda fund fimmtudagskvöldið 6.nóvember nk kl 20:00 í
risastóru námsmanna íbúð Jóhönnu E. að Eggertsgötu 16, íbúð 103.

Við viljum sérstaklega beina orðum okkar að nýnemum og endilega fá AÐ
MINNSTA KOSTI 2 nýnema með í gamanið. Því fleiri sem taka þátt, því minni
vinna verður þetta. Þegar blaðið kemur út er líka gaman að geta sýnt
foreldrum, vinum og ættingjum árangur erfiðisins :)

Stöndum saman kæru nemendur og fjölmennum á fundinn!

Ef að þið komist ekki á þessum tíma en viljið samt taka þátt þá endilega
hafið samband við mig (Hönnu jsr1@hi.is). Erum byrjuð að safna að okkur efni.

Sjáumst á fimmtudagskvöldið

Ritnefnd


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 20:00:10 / Jóhanna Elísabet

Padeia blaðið!!

Jæja ég held að það sé alveg kominn tími að hafa fund varðandi blaðið okkar. Ég stefni á að hafa fund á Þriðjudaginn næstkomandi annað hvort í Odda eða bara heima hjá mér seinni partinn. Líklega um 5 eða 6 leytið.
Þeir sem eru nú þegar í ritnefndinni: Jóhanna E., Sísí, Ína, Sandra og svo nokkrir aðrir úr stjórninni, verð að viðurkenna að ég er ekki alveg með það í kollinum akkúrat núna hverjir hehe.. 8|
Það væri rosa ánægjulegt að fá allavega einn nýnema í ritnefnd.

Allir velkomnir að koma á fundinn og tékka á þessu! Hvet alla til að láta sjá sig! Tímasetningu mun ég auglýsa hér líklega á mánudaginn! kannski fyrr þannig að fylgist með 8)

Væri gott ef þeir sem hafa áhuga á að koma á fundinn skrifi í athugasemdir:haha:

Kv. Jóhanna E. ritstjóri



» 4 hafa sagt sína skoðun

21.10.2008 17:28:07 / Jóhanna

Vísó í SMFR

Jæja ég er búin að gera lista yfir þá sem komast með í Vísó. Munið að Padeia félagar ganga fyrir, þannig að þið sem skráðuð ykkur og eruð ekki í Padeia fallið sjálfkrafa "á botninn". Minni á að það er ekki of seint að fjárfesta í padeia-skírteini. Sendið mér bara póst (jsr1@hi.is) og ég sendi ykkur upplýsingar og set ykkur á erum-alveg-að-fara-að-gera-fleiri-skríteini-listann :)
Og talandi um skírteinin - þá mun Adda mæta á svæðið með ósóttu skírteinin svo að allir fái nú bjórinn sinn á tilboði á Celtic!

Þetta eru þeir sem eru skráðir og eru í Padeia
1.Arnar  2.Jóhanna E  3.Rósalind  4.Guðrún Kjartans  5.Guðný  6.Begga 7.Helga Kristrún 8.Guðrún Gunnars  9.Eva Z  10. Inga Berg  11.Aðalbjörg  12. Lilja  13.Anna Birna  14.Ragnhildur 15.Sandra Sif  16.Svava  17.Bara-Jóhanna  18.Freyja  19.Sandra Hlín  20.Adda Kristín

Þeir sem eru ekki í Padeia en eru efstir á biðlista eru:
Ragnhildur
Sara Dögg

Skemmtið ykkur svo alveg súper dúper vel - og ég treysti á Bara-Jóhönnu að skrifa niður listann og númerin og sjá um að allir mæti sem eru skráðir (engir laumupúkist með!) svona fyrst að ég verð fjarri góðu gamni. Skemmtið ykkur alveg ótrúlega vel - og svo er aldrei að vita nema ég haldi eftirpartý í búslóðarlausu íbúðinni minni í Vogunum! Hehehehehe



» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti